Stjórnun verkefnisins
EarthCheck verkefninu á Snæfellsnesi er stýrt af Framkvæmdaráði Snæfellsness. Hlutverk Framkvæmdaráðsins er að vinna að því að sveitarfélögin og Þjóðgarðurinn starfi í anda sjálfbærrar þróunar. Allar stærri ákvarðanir Framkvæmdaráðsins þurfa samþykki allra sveitarstjórnanna á svæðinu. Í upphafi var Framkvæmdaráðið skipað óháðum fulltrúum úr sveitarfélögunum fimm. Árið 2009 varð sú breyting á að í ráðið voru skipaðir forsvarsmenn sveitarfélaganna fimm, það er bæjar- og sveitarstjórar, í því skyni að auðvelda ákvarðanatökur og umsýslu. Umhverfisfulltrúi Snæfellsness, Theódóra Matthíasdóttir (theo@nsv.is) er starfsmaður Framkvæmdaráðsins og sér um að verkefni á vegum þess séu framkvæmd.