Dæmi um verkefni sem Framkvæmdaráðið hefur staðið fyrir

Framkvæmdaráð Snæfellsnes hefur meðal annars unnið að stefnumótun og stjórnun EarthCheck verkefnisins en hefur einnig komið að ýmsum smærri verkefnum.  

Sett voru upp fræðsluskilti við Kirkjufell vorið 2006. Náttúrustofa Vesturlands hannaði skiltin og skrifaði texta en ljósmyndir voru fengnar frá náttúruljósmyndurunum Jóhanni Óla Hilmarssyni (tengill á http://www.johannoli.com /) og Daníel Bergmann (tengill á http://www.danielbergmann.com/).

 

 

 

 

 

 

 

 

Þjóðleiðin yfir Kambsskarð var stikuð. Nemendur í Lýsuhólsskóla sáu um það undir stjórn Sæmundar Kristjánssonar. Á næstunni verða sett fræðsluskilti við gönguleiðina.