Hvað er umhverfisvottun EarthCheck

Almennt um EarthCheck

Munurinn á EarthCheck og Staðardagskrá 21

Af hverju vottun?

Að hljóta umhverfisvottun

Sjálfbærnivísar


Almennt um EarthCheck

Vottunarsamtökin EC3 Global eru áströlsk samtök sem sjá um vottun samfélaga og ferðaþjónustuaðila og veita þeim umhverfismerki ef þau standast kröfur. EarthCheck vottunarsamtökin byggja á sterkum faglegum grunni og er þróað af fyrirtæki í eigu ástralska ferðamannaiðnaðarins, ríkisins og háskóla. Um er að ræða stærstu rannsóknamiðstöð ferðamála í heiminum og hefur það að markmiði að stuðla að sjálfbærni í ferðaþjónustunni.

Samtök þessi hafa umsjón með EarthCheck vottunarkerfinu, sem byggir á hugmyndafræði Dagskrár 21 um ábyrga stjórnun og sjálfbæra þróun, en til verkefnisins var stofnað með stuðningi Alþjóða ferðamálaráðsins og Alþjóða ferðamálasamtakanna árið 1994. Í upphafi gekk vottunarkerfið undir nafninu Green Globe, en fyrri hluta árs 2010 varð breyting á og kerfið tók upp merki EarthCheck. Sömu vottunarsamtök standa að vottuninni og áður og hefur hún ekki breyst efnislega, aðeins nafnið. EarthCheck umhverfismerkið er notað á ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaáfangastaði sem vilja stuðla að sjálfbærri þróun. Merkið nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og er stærsti vottunaraðili ferðaþjónustunnar, enda hafa samtökin vottað meira en 1000 aðila í yfir 60 þjóðlöndum í öllum heimsálfum. Erlendis er því um þekkt og traust umhverfismerki að ræða. EC3 Global eru enn sem komið er einu vottunarsamtökin í heiminum sem votta samfélög.

EarthCheck staðallinn fyrir samfélög byggir á ábyrgri stjórnun og sjálfbærri þróun. Staðallinn veitir samfélögum ramma til þess að mæla frammistöðu sína og vinna að stöðugum úrbótum í umhverfis- og samfélagsmálum. Hann byggir á sex meginstoðum:

  1. Trygg stjórn samfélagsins og vottunarkerfisins.
  2. Gildandi lögum og reglugerðum er fylgt í hvítvetna.
  3. Sjálfbærnistefna í umhverfis- og samfélagsmálum.
  4. Framvkæmdaáætlun til fimm ára í senn, sem er endurskoðuð árlega.
  5. Skráningar- og vöktunarkerfi til að fylgjast með árlegri frammistöðu á 12 sviðum.
  6. Öflugt samráð við alla hópa samfélagsins, þannig að allir eigi þess kost að taka þátt í stefnumótuninni og koma athugasemdum á framfæri. Einnig er sett upp og framfylgt kynningaráætlun um framgang verkefnisins.

Þegar um vottun sveitarfélags er að ræða tekur vottunin til starfsemi sveitarfélagsins sjálfs, það er starfsemi stofnana og verkefna sem eru á þess vegum og ábyrgð. Vottunarferlið tekur ekki til fyrirtækja eða stofnana á vegum einkaaðila eða ríkis, sem staðsett eru í viðkomandi sveitarfélagi, að öðru leyti en að fjöldi umhverfisvottaðra fyrirtækja í sveitarfélaginu getur talist til tekna í vottunarferlinu og sumar sjálfbærnivísarnir byggja á mælingum á notkun allra íbúa á auðlindum, svo sem vatni og orku, og losun allra íbúa á úrgangi.

Munurinn á EarthCheck og Staðardagskrá 21

Á undanförnum árum hafa mörg sveitarfélög á Íslandi unnið að úrbótum í umhverfismálum með vinnu að Staðardagskrá 21. Í Staðardagskrárvinnu er sveitarfélögunum alveg í sjálfsvald sett hvaða áherslum er fylgt og hversu hratt breytingar eru gerðar. Þetta getur verið kostur fyrir sveitarfélögin en veldur því m.a. að sveitarfélög standa sig mjög misvel. Þá er lítil sem engin eftirfylgni eða eftirlit í Staðardagskrárferlinu og skapar hún því takmörkuð tækifæri til markaðsetningar. Þrátt fyrir það hefur Staðardagskrárvinna stuðlað að mörgum gríðarlega jákvæðum framförum í umhverfismálum á Íslandi og annars staðar. Nánari upplýsingar um Staðardagskrá 21 má finna á http://www.samband.is/dagskra21/.   

EarthCheck vottunarkerfið byggir á Staðardagskrá 21 en er ólíkt henni meðal annars að því leiti að um er að ræða óháða umhverfisvottun þriðja aðila. Vottunarkerfið felur í sér að samtökin setja viðmið fyrir samfélagið í heild og því er í raun um trúverðugri leið til umhverfisúrbóta að ræða en felst í til dæmis Staðardagskrárvinnu og vottun samkvæmt ISO 14001 staðli.

Af hverju vottun?

Ótvíræðir kostir felast í því að byggja upp sjálfbæra lifs- og starfshætti með vottun óháðs þriðja aðila:

Trúverðugleiki: Árangur er metinn af óháðum aðila og þarf að standast skilgreinda staðla og viðmið.

Aðhald og eftirfylgni: Úttekt vottunaraðila tryggir eftirfylgni og haldbærar upplýsingar um frammistöðu og kerfið því líklegra til að skila raunverulegum skrefum í átt að sjálfbærni.

Gæðastjórnun: Þáttaka í vottunarferli eykur gegnsæi upplýsinga, bætir verk- og pappírsferla og gefur betra yfirlit yfir notkun náttúruauðlinda. Hún stuðlar því að bættri gæðastjórnun.

Markaðs- og kynningartæki: Umhverfisvottun alþjóðlega viðurkennds vottunaraðila með þekktu umhverfismerki felur í sér ný og fjölbreytt tækifæri til landkynningar og markaðssetningar, sér í lagi fyrir ferðaþjónustu og framleiðslugreinar.

Að hljóta EarthCheck umhverfisvottun

Umsækjendur um umhverfisvottun EarthCheck ganga í gegnum þríþætti ferli:

  1. Skráning í vottunarkerfi EarthCheck. Undirbúningur að næsta ferli, stefnumótun og fleira.
  2. Mælingar á tölulegum vísum og gerð framkvæmdaáætlunar. Eftir mælingar í eitt ár eru niðurstöður sendar til vottunarsamtakanna, sem meta hvort lágmarksviðmiðum hafi verið mætt. Ef svo er fer verkefnið í þriðja þrepið.
  3. Vottun frá EarthCheck. Viðurkenndur óháður vottunaraðili tekur starfsemina út og kannar hvort stöðlum EarthCheck sé mætt og hvort framkvæmdaáætlun sé uppfyllt. Sé svo, er veitt vottun til eins árs í senn. Vottun felur ekki í sér að viðkomandi aðili hafi náð fullkomnun heldur að hann hafi uppfyllt grunnviðmið og skuldbindi sig til að vinna að stöðugum úrbótum.

Sjálfbærnivísar

Árlega skilar samfélagið mælanlegum upplýsingum um frammistöðu sína á eftirfarandi sviðum og skal stefnt að stöðugum úrbótum, sérstaklega þar sem frammistaðan er ekki metin framúrskarandi.

Auk þessara fyrirfram ákveðnu vísa getur hvert samfélag búið sér til sína eigin vísa sem fylgst verður með. Sem dæmi má nefna að á Snæfellsnesi er mæld sú endurnýjanlega orka sem framleidd er á svæðinu og sama er að segja um endurnýjanlega orku sem neytt er á svæðinu.